Select a language for our global site:

Select a country site:
 

Ríkisstjórn Íslands

Markmið Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) er að tryggja að allir sem flúið hafa átök, ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu, hafi rétt til að leita hælis og finna öruggt skjól.

Ísland er áreiðanlegt gjafaland og samstarfsaðili UNHCR og hefur aukið framlög sín umtalsvert undanfarin ár. Ísland hefur einnig stutt við bakið á starfi UNHCR á Sahel-svæðinu.

Nánari upplýsingar má finna á yfirlitssíðum okkar.

Lestu meira um áhrif framlaga Íslands

Ísland styrkir UNHCR um 2.4 milljónir USD

Ísland styrkir UNHCR um 2.4 milljónir USD

Ísland hefur aukið framlög sín til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til þess að bregðast við afleiðingum átakanna í Sýrlandi og sýnir um leið samstöðu með flóttafólki og þeim sem flúið hafa heimili sín vegna átakanna í landinu. Framlagið, að upphæð 2.4 milljóna USD, er það stærsta sem íslensk stjórnvöld hafa nokkru sinni veitt til UNHCR. Framlagið verður nýtt til að styðja við flóttamenn innan landamæra Sýrlands en einnig til stuðnings við flóttamenn sem hafast við í flóttamannabúðum í helstu nágrannaríkjum Sýrlands.