'
;

Okkar starf

Flóttamannastofnun SÞ vinnur að vernd og aðstoð við flóttamenn alls staðar. Við fylgjum flóttafólki frá upphafi til úrlausna.

Við gerum okkar besta til að tryggja að allir hafi rétt til að leita hælis og finna öruggt skjól í öðru ríki, með möguleikann á að snúa að lokum aftur heim, setjast að eða flytjast annað.

Starfinu okkar má skipta niður í þrjú verkefni:

Þegar fólk hrekst að heiman veitum við lífsnauðsynlega neyðaraðstoð með hreinu vatni, hreinlætisvörum og heilsugæslu, auk þess sem við veitum skjól, dreifum teppum, munum til heimilisnota og stundum mat. Við skipuleggjum einnig flutning og hjálparpakka fyrir fólk sem snýr aftur heim og tekjumyndandi verkefni fyrir þá sem setjast að annars staðar.

Við vinnum við að kynna alþjóðlega sáttmála er snerta á málefnum flóttafólks þeirra sem hafa ekkert ríkisfang: við berjumst fyrir því að flóttafólk hafa rétt til að leita hælis og/eða verndar í öllum löndum heimsins; við leitum af langtíma lausnum sem fela í sér m.a. að snúa aftur heim þegar/ef ástand leyfir og/eða aðlögun að nýju landi og nýju samfélagi.

Aðstoð okkar bætir lífsgæði flóttamanna.