Sjóðir sem eru ekki sérmerktir geta bjargað flóttamönnum um allan heim
Framlög til Flóttamannastofnunar SÞ
Ísland leggur fé til Flóttamannastofnunar SÞ með reglubundnum hætti. Árið 2016 fjórfaldaði Ísland stuðning sinn við Flóttamannastofnunar SÞ með hæsta framlagi sínu til Flóttamannastofnunarinnar, samtals 2,4 milljónum dollara til neyðarástandsins í Sýrlandi, sem gerir landið að sjöunda stærsta gefanda til Flóttamannastofnunarinnar miðað við höfðatölu. Ísland hefur skuldbundið sig til að veita Sýrlandi stuðning og lagði 600.000 dollara til ástandsins í Sýrlands árið 2015.
Starfsemi
Ísland styrkir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna með þriggja ára samkomulagi um stuðning við flóttamenn
Þann 27. febrúar 2017, skrifaði Ísland undir þriggja ára samning við Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) sem einnig telur viðbótarstuðning að lágmarki 50 milljónir ISK, sem er mikilvægur áfangi í samstarfi Íslands og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Ísland styrkir UNHCR um 2.4 milljónir USD
Ísland hefur aukið framlög sín til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til þess að bregðast við afleiðingum átakanna í Sýrlandi og sýnir um leið samstöðu með flóttafólki og þeim sem flúið hafa heimili sín vegna átakanna í landinu. Framlagið, að upphæð 2.4 milljóna USD, er það stærsta sem íslensk stjórnvöld hafa nokkru sinni veitt til UNHCR. Framlagið verður nýtt til að styðja við flóttamenn innan landamæra Sýrlands en einnig til stuðnings við flóttamenn sem hafast við í flóttamannabúðum í helstu nágrannaríkjum Sýrlands.
Fjöldi flóttamanna á heimsvísu fer yfir 50 milljónir í fyrsta sinn síðan í síðari heimsstyrjöldinni
Samkvæmt skýrslu sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna birtir í dag hefur fjöldi þeirra sem eru á flótta vegna átaka í heiminum farið yfir 50 milljónir í fyrsta skiptið síðan í síðari heimsstyrjöldinni.
Samstarfsaðilar gjafaþjóðar
Utanríkisráðuneytið er samstarfsaðili Flóttamannastofnunar SÞ fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, varðandi málefni tengd stefnumótandi samstarfi og fjármögnun.