Select a language for our global site:

Select a country site:
 
'
;

Gögn og útgefin verk

Flóttamannahjálp Sameinuðu Þjóðanna býr yfir fjölda gagna fyrir starfsfólk, stjórnvöld, hjálparstofnanir, fræðimenn og almenning.

Deild vettvangsupplýsinga og samhæfingar aðstoðar útvegar kort og tölfræði.  Í RefWorld býr ómetanlegur auður vegna gagnasafnsins sem nýtist við að ákvarða stöðu flóttafólks.

Skjalasafn Flóttamannahjálparinnar nýtist við rannsóknir á sögu og málefnum flóttafólks. Það er að finna í höfuðstöðvum okkar í Genf og er aðgengilegt jafnt rannsakendum sem og almenningi.

Í Genf er einnig að finna stefnumótun og matsþjónustu okkar sem sinnir nauðsynlegum greiningum og rannsóknum.

Útgáfa verka er mikilvæg leið fyrir Flóttamannahjálpina til þess að auka meðvitund um flóttafólk og aðra sem málin snerta.  Hún gerir okkur einnig kleift að skýra frá aðgerðum á alþjóðavettvangi sem og á heimavelli.  Við gefum út fjölbreytt efni fyrir ólíka markhópa, allt frá grundvallarritum eins og Genfarsáttmálann frá 1951 til rannsóknar- og matsskýrslna. Lesa má um aðgerðir okkar á heimsvísu í tveimur skýrslum sem gefnar eru út á hverju ári; Alheimsskýrslunni og Alheimsákallinu.

Alheimsskýrslan

Alheimsskýrslan kemur út í júní og gefur hún yfirgripsmikla mynd af áskorunum og afrekum Flóttamannahjálparinnar á heimsvísu.

Alheimsákallið

Alheimsákallið er ómetanlegur leiðarvísir fyrir hinn almenna lesenda um starfsemi Flóttamannahjálparinnar á heimsvísu.

 

 

Tengdar fréttir og frásagnir