'
;

Flóttamannafulltrúi

Flóttamannahjálpin siglir milli skers og báru. Þar valda mikil og flókin átök og fólksflutningar sem þar af hljótast, áskoranir í hælisleit, ósamræmi á milli fjárframlaga til mannúðarmála og auðlinda, og vaxandi útlendingahatur sem er mjög hættulegt“.

Filippo Grandi er ellefti Flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna.

Hann var kjörinn á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 1. janúar 2016 til fimm ára, eða til 31. desember 2020.

Grandi fæddist í Mílanó 1957 og hefur unnið að málefnum flóttafólks og mannúðarmálum í meira en 30 ár. Frá 2010 til 2014 var hann aðalfulltrúi UNRWA, Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, og þar áður, frá 2005, var hann aðstoðarframkvæmdastjóri stofnunarinnar. Hann starfaði einnig sem Sérstakur framkvæmdarfulltrúi fyrir Aðalframkvæmdastjórn Sameinuðu þjóðanna í Afganistan og hann hefur unnið með óháðum félagasamtökum og Flóttamannahjálpinni í Afríku, Asíu, Miðausturlöndum og í Genf.

Grandi nam samtímasögu í Ríkisháskólanum í Mílanó, heimspeki í Gregoríanska háskólanum í Róm og er heiðursdoktor við Háskólann í Coventry.